Um Eignasögu
Hvert hús á sér sögu.
Við gætum hennar.
Eignasaga er stafræn þjónustusaga fyrir fasteignir. Þar safnast allt sem gert er við eignina á einn stað, og sagan fylgir henni þegar nýir eigendur taka við.
Af hverju Eignasaga
Þekkingin á ekki að flytja út með fólkinu.
Flestar fasteignir eiga sér langa sögu, en fáar þeirra eru skráðar. Reikningar liggja í möppum og pósthólfum, myndir í símum, og það sem iðnaðarmaðurinn sagði gleymist. Við hver eigendaskipti hverfur stór hluti af því.
Eignasaga breytir því. Hvert verk er skráð með dagsetningu, myndum og gögnum, hvort sem eigandinn vann það sjálfur eða fékk fagmann í það. Sagan tilheyrir eigninni, ekki eigandanum, og nýr eigandi tekur við henni allri.
Það sem við byggjum á
Fjögur loforð sem breytast ekki.
Sagan tilheyrir húsinu.
Hún fylgir eigninni við eigendaskipti, og staðfest verk breytast ekki eftir á.
Ókeypis fyrir húseigendur, alltaf.
Allt sem húseigendur nota í Eignasögu kostar ekkert. Verktakar og fyrirtæki geta valið sér áskrift.
Þú ræður hver sér hana.
Sagan er lokuð sjálfgefið. Þú opnar hana þegar þú vilt, til dæmis fyrir kaupanda.
Traust frá fyrsta degi.
Innskráning með rafrænum skilríkjum og eignarhald staðfest gegn Fasteignaskrá HMS.
Bakhjarlar
Styrkt af Tækniþróunarsjóði.
Eignasaga hefur hlotið Fræ-styrk úr Tækniþróunarsjóði, sem Rannís hefur umsjón með.
Hafa samband
Viltu heyra í okkur?
Spurningar, hugmyndir eða samstarf. Sendu okkur línu eða notaðu formið.
Eignasaga ehf.
Saga eignarinnar
byrjar á einni færslu.
Stofnaðu aðgang og skráðu fyrsta verkið í dag, þér að kostnaðarlausu.


