Eignin þín
á sér sögu.
Skráðu viðhald og framkvæmdir með myndum og reikningum, allt á einum stað. Sagan fylgir eigninni, líka þegar nýir eigendur taka við.
Ókeypis fyrir húseigendur, alltaf. Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.

Sögugata 12, eins og hún er skráð
Svona lítur sagan út.
Hvert verk á sínum stað, með dagsetningu, myndum og reikningum. Nýju verki bætir þú við á augabragði, í símanum eða tölvunni.
Hvar er sagan af þínu húsi?
Sagan er til.
Hún er bara út um allt.
Kvittanir í skúffu, myndir í símanum og nafn iðnaðarmannsins í minninu. Þegar á reynir finnst ekkert af því.
Í Eignasögu er hvert verk á sínum stað.
Með dagsetningu, myndum og reikningum. Eldri verkum bætir þú við hvenær sem er, og sagan fylgir eigninni.
Fyrir húseigendur
Þú þarft söguna oftar en þú heldur.
Hún er ekki bara fyrir söludaginn. Þú flettir upp í henni þegar eitthvað bilar, þegar þig vantar iðnaðarmann eða þegar einhver spyr hvað hafi verið gert.

+11Baðherbergi endurnýjaðSögulagnir ehf. · 202412 myndir- Reikningur, Söguþak ehf.pdf
- Verklýsing.pdf
- Myndir fyrir og eftir
Sögurafmagn ehf.Hringja
Sögugata 12
Saga eignarinnar
- 14
- verk skráð
- 86
- myndir
- 32
- skjöl
- Eigin verk eiga líka heima í sögunni. Hvort sem þú vannst verkið eða fékkst fagmann í það. Eldri verk má líka skrá.
- Lokuð þar til þú opnar hana. Sagan er lokuð sjálfgefið. Þú ræður hver sér hana og hvenær, til dæmis við sölu.
Svona byrjarðu
Þrjú skref og sagan er byrjuð.
- 1
Skráðu þig inn
Með rafrænum skilríkjum, í Auðkennisappinu eða með símakorti.
- 2
Finndu eignina
Leitaðu að heimilisfanginu. Eignarhaldið er staðfest sjálfkrafa gegn Fasteignaskrá HMS.
- 3
Skráðu fyrsta verkið
Eitt verk sem þú manst eftir dugar. Reikningar frá iðnaðarmönnum í pósthólfinu eru góður staður til að byrja.
Ókeypis fyrir húseigendur, alltaf.
Gott að vita
Áður en þú byrjar.
Hvað tekur langan tíma að byrja?
Um eina mínútu. Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum, finnur eignina og eignarhaldið er staðfest sjálfkrafa í fasteignaskrá.
Get ég skráð eldri verk?
Já. Þú getur skráð verk sem þegar hafa verið unnin og bætt við upplýsingum og gögnum sem þú átt.
Hvað ef ég á ekki reikningana lengur?
Þú getur samt skráð verkið. Lýsing, ártal og myndir duga til að byrja, og þú bætir reikningum við ef þeir finnast síðar.
Hvað þýðir að verk sé staðfest?
Það merkir að verktakinn sem vann verkið hefur staðfest skráninguna. Verk sem eigandi skráir án staðfestingar eru aðgreind frá staðfestum verkum.
Hvað verður um söguna ef ég sel?
Sagan tilheyrir eigninni, ekki eigandanum. Þegar nýr þinglýstur eigandi skráir eignina tekur hann við henni með allri sögunni, og staðfest verk læsast svo þau breytast ekki eftir á.
Hver sér söguna mína?
Sagan er lokuð sjálfgefið. Þú ræður hvort hún verður opinber og getur veitt öðrum aðgang, til dæmis við sölu.
Kostar þetta eitthvað?
Nei. Eignasaga er ókeypis fyrir húseigendur.
Hvar finn ég upplýsingar um gögnin mín?
Í persónuverndarstefnu og upplýsingum um öryggismál má lesa nánar um meðferð gagna.
Fyrir verktaka og fyrirtæki
Verkin þín fylgja húsinu.
Þegar þú staðfestir verk verður þú fagmaður fasteignarinnar í Eignasögu. Skráning og staðfesting verka er alltaf ókeypis.
Saga eignarinnar
byrjar á einni færslu.
Stofnaðu aðgang og skráðu fyrsta verkið í dag, þér að kostnaðarlausu.



baðið, 2024